- Heytegund: Rúlluhey
- Fjárstofn: Af Ströndum
- Sumarbeit: Eyðivíkur sunnan Borgarfjarðar, aðallega Kjólsvík og Breiðuvík
- Beit fyrir slátrun: Beint af fjalli
- Vetrarmeðferð: Á húsi
Bændur: Ásgeir Arngrímsson f. 1949 og Bergrún Jóhanna Borgfjörð f. 1948.
Sími: 472 9962 og 866 3913.
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Búseta: Upphaf búskapar 1970, þar af frá 1980 í Brekkubæ, sem þá var stofnuð sem sérstök bújörð.
Aukastörf: Jóhanna og Ásgeir koma að ferðaþjónustu meðfram búskapnum. Þau reka farfuglaheimilið Ásbyrgi og koma auk þess að veitingarrekstri á nýreistri bændagistingu, Álfheimum þar sem afurðir búsins eru í forgrunni.
Bústærð: 500 fjár.
Um framleiðslu lambakjötsins
Fjárstofn: Aðallega af Ströndum.
Vetrarfóðrun áa: Rúlluhey. Kjarnfóður handa gemlingum og lítilsháttar á sauðburði.
Sumarbeit: Öllu fé sleppt til Breiðuvíkur og gengur á víknaslóðum sunnan Borgarfjarðar á sumrin.
Beit fyrir slátrun: Aðallega beint af afrétt. Einnig úthagi og tún.
Meðalfallþungi 2009: 16,0 kg.
Gæðaflokkun: Holdfylling góð. Fita lítil.
Landshættir
Jörðin liggur í nágrenni þorpsins í Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Beitiland Brekkubæjar er á svonefndum Víkum sunnan Borgarfjarðar, einkum í Breiðuvík og Kjólsvík, þar sem lömbin ganga villt í sumarhögum, fjarri mannabústöðum.








